Viðskipti
| mbl
| 25.9.2009
| 15:30
Segir ríkiseign styrkja NBI
Ásmundur Stefánsson, bankastjóri Nýja Landsbankans, segir að stærð bankans, fjölbreytni útlánasafns og eignarhlutur ríkisins muni styrkja hann til erlendrar lántöku. „Landsbankinn verður eini stóri íslenski bankinn og á allt undir fólki og fyrirtækjum á Íslandi,“ sagði Ásmundur þegar hann ávarpaði aðalfund Samtaka fiskvinnslustöðva á Grand Hóteli í dag.
Ásmundur sagði að skuldabréf í erlendri mynt í skuldauppgjöri bankans gæfu möguleika á því að viðhalda hluta lána í erlendri mynt.
„Ég er ekki þeirrar skoðunar að skortur á erlendu eignarhaldi muni veikja stöðu okkar erlendis,“ sagði Ásmundur og var að vísa til möguleika bankans til að afla sér lánsfjár á erlendum mörkuðum.
Ásmundur
sagði að Landsbankinn hefði margvísleg úrræði handa fyrirtækjum. Um væri að
ræða breytingar á skilmálum lána, skilyrtar afskriftir lána á móti nýju
hlutafé, yfirtaka á eignarhaldi og rekstri. Hann sagði að Landsbankinn hefði
jafnframt leitt lækkun útlánsvaxta.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















