Heildareignir Íslandsbanka 629 milljarðar
Eftir Magnús Halldórsson magnush@mbl.is
Samkvæmt honum voru eignir Íslandsbanka áætlaðar 885 milljarðar. Þessi munur skýrist af því að við endanlega ákvörðun um yfirfærslu á eignum var ákveðið að yfirtaka færri lán en gert hafði verið ráð fyrir.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins voru það m.a. lán sem tengdust erlendri starfsemi með einhverjum hætti og svo stór lán sem fólu í sér of mikla áhættu fyrir hinn nýja banka.
Af heildareignum bankans eru 477 milljarðar í útlánum. Sjóður og innstæður í Seðlabanka Íslands eru tæplega 54 milljarðar. Fjárfestingar í dótturfélögum eru samtals upp á rúmlega 11 milljarða króna. Lán til annarra fjármálafyrirtækja eru um 8,4 milljarðar. Um 32% af útlánum bankans eru til einstaklinga, 16% til sjávarútvegsfyrirtækja, 14% til fasteignafélaga, 11% til fjárfestingafélaga og 27% til annarra atvinnugreina.



















