Verðbólgan nú 10,8%

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í september hækkaði um 0,78% frá fyrra mánuði, samkvæmt útreikningum Hagstofunnar. Síðasta árið hefur vísitalan hækkað um 10,8%. Er þetta ívið minni verðbólga en í ágúst en þá hafði vísitala neysluverðs hækkað um 10,9%. Hefur ársverðbólga ekki verið minni frá því í mars á síðasta ári þegar hún mældist 8,7.

Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkaði um 0,86% frá ágúst og hefur hækkað um 15,7% síðustu 12 mánuði. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,5% sem jafngildir 6,1% verðbólgu á ári (8,7% fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Verðbólga á ársgrundvelli var 5,8% í byrjun ársins 2008 en jókst jafnt og þétt fram eftir árinu. Hæst fór hún t í 18,1% og 18,6% í desember og janúar en hefur síðan farið lækkandi.   

Hagstofan segir að verð á fötum og skóm hafi hækkað milli ágúst og september um 6,2% (vísitöluáhrif 0,35%) og verð á dagvörum um 1,5% (0,26%). Kostnaður vegna eigin húsnæðis hækkaði um 0,8% (0,10%) og voru áhrif af hækkun markaðsverðs 0,14% en af lækkun raunvaxta -0,04%.

Verð á bensíni og díselolíu lækkaði um 2,8% (-0,15%) og verð á flugfargjöldum til útlanda lækkaði um 12,7% (-0,12%).

Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,5% sem jafngildir 6,1% verðbólgu á ári (8,7% fyrir vísitöluna án húsnæðis).

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK