Viðskipti
| AFP
| 29.9.2009
| 7:13
Lítilsháttar hækkun á hráolíu
Verð á hráolíu hækkaði lítillega í rafrænum viðskiptum í Asíu í morgun. Skýrist það af hækkunum á Wall Street í gærkvöldi. Eins skiptir máli sú spenna sem ríkir í Miðausturlöndum eftir að Íranar gerðu eldflaugatilraunir í gær á langdrægum flaugum sem gætu náð til Ísraels.
Verð á hráolíu hækkaði um 2 sent á NYMEX markaðnum í New York og er 66,86 dalir tunnan.
Í Lundúnum hækkaði Brent Norðursjávarolía um fimm sent og er 65,59 dalir tunnan.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















