Viðskipti
| mbl
| 30.9.2009
| 13:42
Bjóða í tékkneska ríkisflugfélagið
Tékkneska leiguflugfélagið Travel Service og tékkneska fjármálafélagið Unimex hafa lagt fram sameiginlegt tilboð í tékkneska ríkisflugfélagið Czech Airlines. Icelandair Group á 50,1% hlut í Travel Service.
Fram kemur á fréttavef Wall Street Journal, að um sé að ræða eina tilboðið í tékkneska flugfélagið en tilboðið barst á hádegi. Búist var við yfirlýsingum frá bæði tékkneskum stjórnvöldum og bjóðendum í dag.
Tékknesk stjórnvöld vonast til að afla jafnvirði um 33 milljarða króna með sölu á 91,5% hlut sínum í Czech Airlines. Félagið tapaði um 100 milljónum dala, jafnvirði um 12,4 milljarða króna. Til að bregðast við því stendur til að selja flugvélar og draga úr flugframboði.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















