Mikill samdráttur í Danmörku
Tölur, sem danska hagstofan birti í morgun, sýna að verg landsframleiðsla dróst saman á 2. ársfjórðungi um 2,6% samanborið við fjórðunginn á undan og um 7,2 miðað við sama ársfjórðung árið 2008.
Til samanburðar má geta þess að á Íslandi dróst landsframleiðsla saman um 2% á öðrum ársfjórðungi miðað við þann fyrsta og um 6,5% samanborið við 2. ársfjórðung á síðasta ári, samkvæmt útreikningum Hagstofunnar.
„Þetta er mikill samdráttur í sögulegu samhengi," hefur fréttavefur Børsen eftir Steen Bocian, aðalhagfræðingi Danske Bank. Hann segir að þetta sé mun meiri samdráttur en sérfræðingar bjuggust við og sýni að, fjármálakreppan hafi haft mun meiri áhrif í Danmörku en menn gerðu sér grein fyrir. Nú benti allt til þess, að landsframleiðslan dragist saman um 4,5-5,5 á árinu öllu samanborið við síðasta ár.
Það er einkum samdráttur í fjárfestingu, 10,3%, sem leiðir til þess að landsframleiðslan dregst saman. Einkaneysla hefur dregist saman um 0,3% milli ársfjórðunga en samneysla aukist um 0,5%.



















