Viðskipti
| mbl
| 30.9.2009
| 14:40
| Uppfært
15:04
Tilboðið upp á rúma 7 milljarða
Tilboð tékknesku fyrirtækjanna Unimex og Travel Service í tékkneska ríkisflugfélagið Czech Airlines hljóðaði upp á meira en 1 milljarð tékkneskra króna, jafnvirði um 7,5 milljarða íslenskra króna. Icelandair Group á 50,1% hlut í Travel Service.
Um var að ræða eina tilboðið í tékkneska flugfélagið en tilboðið barst á hádegi í þann mund sem tilboðsfrestur rann út.
Tékknesk stjórnvöld höfðu vonast til að afla jafnvirði um 33 milljarða króna með sölu á 91,5% hlut sínum í Czech Airlines en markaðsaðstæður hafa breyst mjög til hins verra á síðustu mánuðum. Félagið tapaði um 100 milljónum dala, jafnvirði um 12,4 milljarða króna. Til að bregðast við því stendur til að selja flugvélar og draga úr flugframboði.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















