Áætla að afborganir af íbúðalánum minnki um 5-10 milljarða
Íbúðalánasjóður
Greining Íslandsbanka telur ekki ólíklegt að greiðslur af íbúðalánum geti orðið 5-10 milljörðum minni á næsta ári vegna breytinga sem ríkisstjórnin hefur kynnt á greiðslubyrði íbúðalána.
Nýframkomnar tillögur ríkisstjórnarinnar um breytingu á greiðslubyrði íbúðalána gætu haft einhver áhrif til þess að auka útgáfuþörf Íbúðalánasjóðs á komandi misserum. Þar sem breytingin er valkvæm er erfitt að meta hversu stór hluti lántaka hjá sjóðnum muni fá greiðslubyrði sína af lánum sjóðsins lækkaða, að því er segir í Morgunkorni Íslandsbanka.
„ Þar sem breytingarnar lengja einnig virkan meðallíftíma eignasafns ÍLS gætu þær aukið líkur á að nýjum flokki íbúðabréfa með lokagjalddaga árið 2054 verði ýtt úr vör á komandi mánuðum," að því er fram kemur í Morgunkorni.



















