Viðskipti
| Morgunblaðið
| 1.10.2009
| 6:32
Fékk háar þóknanir frá FL Group
mbl.is
Kemur þetta fram í skýrslu sem Ernst & Young vann fyrir aðstoðarmann greiðslustöðvunar Stoða/FL Group. Fengu Sund um 250 milljóna króna þóknun fyrir að leggja 2,5 milljarða króna af hlutafé inn í NTH þegar félagið var stofnað. Var hluturinn sölutryggður og seldu Sund hlut sinn í NTH til FL Group fyrir 2,75 milljarða króna. Þá hafði FL Group skuldbundið sig til að kaupa 31,78% af undirliggjandi eignum Grettis hf. ef ákveðið yrði að slíta félaginu, sem var þá í 49% eigu Sunda.
Að lokum kemur fram að FL Group hafi skuldbundið sig til að greiða Sundum 222 milljónir króna án þess að sú greiðsla sé útskýrð.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















