Virði eigna Kaupþings eykst
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@mbl.is
Áætlað markaðsvirði eigna skilanefndar Kaupþings nam 1.705 milljörðum króna um mitt þetta ár samkvæmt efnahagsreikningi sem gerður var opinber í gær.
Eignirnar hafa aukist um rúma 113 milljarða króna frá síðustu áramótum. Alls eru um 878 milljarðar króna af þessum eignum veðsettir og forgangskröfur nema um 53 milljörðum króna. Þegar búið er að draga þær frá nema hreinar eignir skilanefndarinnar 774,5 milljörðum króna.
Ljóst er á efnahagsreikningnum að verðmat skilanefndarinnar á eignum sínum, sérstaklega lánum til viðskiptavina, hækkaði töluvert á fyrri hluta ársins 2009 en áætlað virði þeirra eigna sem eru ekki veðsettar né forgangskröfur hækkaði um 16% á tímabilinu.
Greiðslur af lánum miklar
Þá hafa uppgreiðslur lána, greiðslur inn á höfuðstól þeirra og vaxtagreiðslur af þeim skilað um 102 milljörðum króna til skilanefndarinnar frá 21. október síðastliðnum.Þar fyrir utan fengust 27,6 milljarðar króna fyrir sölu á dótturfélagi bankans í Svíþjóð.



















