Viðskipti
| mbl
| 8.10.2009
| 14:24
Bretland helsta fjármálamiðstöð heims
Bretland hefur tekið við af Bandaríkjunum sem helsta fjármálamiðstöð heimsins, samkvæmt nýjum lista World Economic Forum (WEF). Á listanum eru 55 ríki en Ísland er ekki á listanum ólíkt hinum Norðurlöndunum sem öll eru meðal 19 helstu fjármálamiðstöðva heims. Bandaríkin eru nú í þriðja sæti listans en voru síðast í því fyrsta. Ástralía er í öðru sæti listans.
Á vef breska blaðsins Telegraph segir að þetta muni ýta enn frekar undir keppnina á milli Lundúna og New York um hvaða staður í heimi sé bestur til þess að stunda viðskipti á. Vísar blaðið í nýlega skýrslu um að margir vogunarsjóðir séu að flytja höfuðstöðvar sínar til New York þar sem reglur eru ekki jafn stífar þar og annars staðar.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















