Skilyrði sett fyrir yfirtöku Íslandsbanka á 42% hlut í Icelandair
Skilyrðin sem sett eru:
1. gr.
Íslandsbanki skal ekki grípa til neinna ráðstafana sem með beinum eða óbeinum
hætti er ætlað að hafa áhrif á við hvaða fyrirtæki Icelandair Group eða
dótturfélög Icelandair Group eiga viðskipti.
2. gr. Íslandsbanki skal ekki grípa til neinna ráðstafana sem með beinum eða óbeinum hætti er ætlað að hafa áhrif á viðskiptakjör fyrirtækja, sem er í eigu bankans að hluta eða öllu leyti, sem selja Icelandair Group, dótturfélögum Icelandair Group eða keppinautum þessara fyrirtækja vörur eða þjónustu.
3. gr. Íslandsbanki skal tryggja með nauðsynlegum aðgerðum að viðkvæmar upplýsingar sem bankinn býr yfir eða kann að búa yfir um keppinauta eða viðskiptavini Icelandair Group og dótturfélaga Icelandair Group berist ekki til þeirra fyrirtækja.
4. gr. Íslandsbanki skal tryggja með nauðsynlegum aðgerðum að viðkvæmar upplýsingar sem bankinn býr yfir eða kann að búa yfir um Icelandair Group og dótturfélög Icelandair Group berist ekki til keppinauta eða viðskiptavina þeirra fyrirtækja.
5. gr. Íslandsbanki skal fyrir 1. nóvember 2009 tilkynna Samkeppniseftirlitinu um aðgerðir sem gripið hefur verið til í því skyni að tryggja að farið verði að framangreindum skilyrðum.
6. gr. Brot á þessum skilyrðum varðar viðurlögum samkvæmt IX. kafla samkeppnislaga.“



















