Hollenskur banki á hliðina
Nout Wellink seðlabankastjóri Hollands og fjármálaráðherra Hollands Wouter Bos sátu fyrir svörum varðandi málefni DNB á blaðamannafundi í dag. Reuters
Hollenski bankinn DSB var í dag settur undir stjórn Seðlabanka Hollands til þess að koma í veg fyrir áhlaup á bankann. Segir í úrskurði héraðsdóms Amsterdam að samþykkt hafi verið beiðni frá DSB um neyðarheimild til þess að bankinn yrði færður undir seðlabankann. Verður sjálfstæður skiptastjórnandi skipaður til þess að gæta hags kröfuhafa næstu átján mánuði.
Samkvæmt upplýsingum frá Seðlabanka Hollands þýðir úrskurður héraðsdóms að tímabundið munu viðskiptavinir DSB ekki geta tekið út fjármuni sína úr bankanum. Segja þeir skýringuna á því að óskað var eftir heimildinni vera þá að mikið fjárstreymi út úr bankanum að undanförnu hafi skapað hættu á falli DSB.DSB hefur nýverið í fréttum vegna ásakana um ýmislegt sem betur hefði mátt fara í rekstri bankans, svo sem of mikið hafi verið lánað til viðskiptavina sem ljóst hafi verið að gætu aldrei greitt skuld sína til baka.
ANP fréttastofan hefur eftir seðlabankastjóra Hollands, Nout Wellink, að á undanförnum vikum hafi sparifjáreigendur hjá bankanum tekið út um 600 milljónir evra, 111 milljarða króna.
Hagnaður DSB nam 45,4 milljónum evra á síðasta ári. Bankinn er aðal styrktaraðili hollenska knattspyrnuliðsins AZ Alkmaar.
Forsvarsmenn seðlabankans og fimm hollenskra banka: Rabo, ANB Amro, ING, Fortis Bank og SNS, hittust á fundi um helgina til þess að skoða möguleikann á því að kaupa DSB. En áhættan var of mikil fyrir bankana, að því er segir í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu.
Samkvæmt upplýsingum frá talsmanni seðlabankans er áhættan einkum fólgin í of háum lánum til viðskiptavina, hærri lánum en viðkomandi geta greitt til baka. Samkvæmt upplýsingum frá fjármálaráðuneytinu stafa erfiðleikar DSB ekki af alþjóðlegu fjármálakreppunni heldur frá innviðum bankans. Svo sem stjórnendavanda, ótta meðal viðskiptavina og óljósrar upplýsingagjafar.
DSB bankinn var sektaður um 120 þúsund evrur, 22,2 milljónir króna í maí af hollenska fjármálaeftirlitinu meðal annars fyrir að hafa ekki reynt að stemma stigu við of háum lánveitingum.Fjármálaráðherra Hollands, Wouter Bos, hét því í dag að óháð rannsókn verði sett af stað varðandi málefni DSB.



















