Cisco kaupir Starent
Í tilkynningu frá Cisco kemur fram að stjórnir fyrirtækjanna beggja hefðu samþykkt kaupin og er gert ráð fyrir að gengið verði frá kaupunum á fyrri hluta næsta árs. Að því tilskyldu að samkeppnisyfirvöld leggja blessun sína yfir viðskiptin.
Starent framleiðir búnað sem gerir það að verkum að hægt er að flytja mikið magn upplýsinga af farsímafyrirtækjum yfir í smartsíma og önnur sambærileg tæki.
Stjórnendur Cisco segjast telja að farsímaumferð muni aukast jafnt og þétt og ríflega tvöfaldast á hverju ári næstu fjögur árin.
Starent var stofnað árið 2000 og starfa um eitt þúsund manns hjá félaginu. Tekjur félagsins námu um 254 milljónum dala á síðasta ári sem er 74% aukning milli ára. Alls nota yfir 100 farsímafyrirtæki í 45 löndum tæknilausnir frá þeim.



















