Landsvaki áfrýjar
Þann 7. október sl. var í héraðsdómi að hluta til fallist á varakröfu átján hlutdeildarskírteinishafa í peningamarkaðssjóðum Landsbankans og viðurkenndur rétt þeirra til skaðabóta vegna þeirrar rýrnunar sem varð á eignarhluta hennar í peningamarkaðssjóði Landsbankans og rekja má til saknæmrar og ólögmætrar háttsemi Landsvaka.
Í tilkynningu frá Landsvaka kemur fram að stjórn félagsins hafi farið yfir forsendur þeirra dóma sem félagið hefur ákveðið að áfrýja.
„Telur Landsvaki hf. að jafnvel þótt niðurstaða héraðsdóms verði staðfest fyrir Hæstarétti sé alls óvíst hvert raunverulegt tjón hvers hlutdeildarskírteinishafa er, ef nokkuð. Þetta byggir á því verðmæti sem fékkst við sölu eigna sjóðsins og þess svigrúms sem fjárfestingarsjóðir hafa til niðurfærslna án þess að lækka gengi. Er hér verið að vísa í leyfilegt frávik á gengi hlutdeildaskírteina."



















