Dow Jones á ný yfir 10.000 stig
Hlutabréf hækkuðu í kauphöllinni á Wall Street í kvöld en fyrr í dag skiluðu tvö bandarísk stórfyrirtæki, bankinn JPMorgan Chase og örgjörvaframleiðandinn Intel, milliuppgjörum sem sýndu mun betri afkomu en búist var við. Dow Jones hlutabréfavísitalan fór yfir 10.000 stig í fyrsta skipti í heilt ár.
Dow Jones hlutabréfavísitalan hækkaði um 1,5% og var 10.015 stig. Síðast var vísitalan yfir tíuþúsund stigum í byrjun október í fyrra. Nasdaq vísitalan hækkaði líka um 1,5% og er 2172 stig. Gengi bréfa deCODE lækkaði hins vegar um 4,65% og er 41 sent.
Hagnaður JPMorgan nam 3,6 milljörðum dala á þriðja ársfjórðungi sem var sjöfalt meira en á sama tímabili á síðasta ári. Hagnaður Intel nam 1,9 milljörðum dala á þriðja ársfjórðungi sem er 5% minna en á sama tímabili í fyrra en samt talsvert meira en sérfræðingar á Wall Street höfðu spáð.



















