Viðskipti
| mbl
| 14.10.2009
| 7:42
Frönsku bankarnir endurgreiða ríkisaðstoð
Franski bankinn Credit Agricole mun hefja endurgreiðslu á þeim þremur milljörðum evra sem bankinn fékk í aðstoð frá franska ríkinu þegar fjármálakreppan skall á í lok mánaðarins. Hafa þá allir stóru frönsku bankarnir sem fengu ríkisaðstoð á síðasta ári endurgreitt ríkinu.
Alls fengu Credit Agricole, Societe Generale, BNP Paribas, Credit Mutuel og BPCE, 19,8 milljarða evra, 3.661 milljarð króna, stuðning frá stjórnvöldum eftir að fjármálakreppan skall á heiminn af fullum þunga eftir fall bandaríska fjárfestingabankans Lehman Brothers í september í fyrra.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















