Viðskipti
| Morgunblaðið
| 14.10.2009
| 5:30
| Uppfært
6:37
Spá því að verðbólga verði 6% í árslok
Vísitala neysluverðs mun hækka um 0,5 prósent í október, gangi spá greiningardeildar Íslandsbanka eftir. Það þýðir að 12 mánaða verðbólga mun lækka úr 10,8% í 9%.
Gerir greiningardeildin ráð fyrir því að húsnæðisliður vísitölunnar verði óbreyttur milli mánaða. Þá spáir hún því að 12 mánaða verðbólga muni lækka hratt það sem eftir lifir árs og verði komin í um 6 prósent í árslok.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















