Viðskipti
| Morgunblaðið
| 15.10.2009
| 5:30
| Uppfært
6:34
Atorka vill samninga
Drög að frumvarpi til nauðasamninga verður kynnt hluthöfum í næstu viku. Golli Kristinn Ingvarsson
Stjórn Atorku ætlar að leggja fram drög að frumvarpi til nauðasamninga á hluthafafundi sem stjórn félagsins hefur boðað til miðvikudaginn 21. október.
Þar verður afstaða kröfuhafa Atorku til frumvarpsins kynnt og tillaga stjórnar félagsins um að henni verið falið að leita til héraðsdóms til nauðasamningsumleitana.
Atorka er meðal annars ráðandi hluthafi í Promens, einni stærstu plastverksmiðju heims. Félagið á einnig hlut í Geysi Green Energy en kröfuhafar Atorku tóku sæti í stjórn þess fyrir skemmstu.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















