Viðskipti
| mbl
| 15.10.2009
| 16:09
Fasteignavísitalan lækkar lítillega
mbl.is
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 313,9 stig í september 2009 og lækkar um 0,1% frá fyrra mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 1%, síðastliðna 6 mánuði hefur hún lækkað um 2,7% og lækkun síðastliðna 12 mánuði var 10,2%.
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs, samkvæmt vef Fasteignaskrár Íslands.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















