Viðskipti
| mbl
| 15.10.2009
| 21:50
Magma með hlutafjárútboð
Kanadíska orkufyrirtækið Magma Energy Corporation hefur efnt til lokaðs hlutafjárútboðs til að fjármagna kaup á 8,62% hlut í HS Orku. Útboðið hljóðar upp á 21,56 milljónir Kanadadala, nærri 2,6 milljarða ísenskra króna. Ross Beaty, forstjóri Magma, kaupir fjórðung af nýja hlutafénu.
Magma gerði einnig samning við Orkuveitu Reykjavíkur í ágúst um að kaupa 32% hlut þess félags í HS Orku. Gert er ráð fyrir að gengið verði endanlega frá þeim kaupum í nóvember.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















