Ríkið undirbýr tilboð í HS Orku
Viðræðuhópur opinberra aðila sem vill kaupa 55 prósenta hlut Geysis Green Energy (GGE) í HS Orku hefur fengið afhent trúnaðargögn um fjárhagslega stöðu orkufyrirtækisins, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins.
Í kjölfarið stendur til að gera stjórn GGE tilboð í hlutinn. Ekki stendur til að gera tilboð í aðrar eignir eða verkefni GGE. Hópurinn samanstendur af fulltrúum frá fjármálaráðuneytinu, lífeyrissjóðum og Grindavíkurbæ.
Viðræður um framtíðarskipulag HS Orku hafa staðið yfir frá því í ágústmánuði þegar í ljós kom að Orkuveita Reykjavíkur (OR) hafði tekið tilboði kanadíska fyrirtækisins Magma Energy í 32,32 prósenta hlut sinn í HS Orku. Áður hafði Magma keypt 10,8 prósent í fyrirtækinu af GGE.
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra og samstarfsmenn hans hafa lagt á það mikla áherslu að meirihluti í HS Orku verði í almenningseigu. Heimildir Morgunblaðsins herma þó að stjórnvöld geri sér grein fyrir mikilvægi erlendrar fjárfestingu í því árferði sem nú ríkir á Íslandi og því hafi verið ákveðið að sækjast eftir hlut GGE frekar en að reyna að koma í veg fyrir kaup Magma í HS Orku.



















