Segir yfirtökuna betri kost

Frá blaðamannafundi Íslandsbanka í dag, Steingrímur J. Sigfússon, Árni Tómasson og Birna Einarsdóttir stækka

Frá blaðamannafundi Íslandsbanka í dag, Steingrímur J. Sigfússon, Árni Tómasson og Birna Einarsdóttir mbl.is/Ómar

Árni Tómasson, formaður skilanefndar Glitnis, segir að það hafi verið samdóma álit skilanefndarinnar og ráðgjafa hennar að yfirtaka á 95% hlut í Íslandsbanka sé betri kostur heldur en að kröfuhafar fái greiðslu í formi skuldabréfa útgefnum af Íslandsbanka og eignast kauprétt á allt að 90% af hlutafé bankans á næstu fimm árum.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Íslandsbanka en nú stendur yfir blaðamannafundur þar sem yfirtaka kröfuhafa á 95% hlut í Íslandsbanka er kynnt.

Skilanefnd Glitnis hefur, fyrir hönd kröfuhafa, ákveðið að nýta sér ákvæði í samningi við íslenska ríkið og eignast 95% hlutafjár í Íslandsbanka. Þessa ákvörðun tók skilanefnd Glitnis eftir ítarlega áreiðanleikakönnun sem framkvæmd hefur verið af hálfu ráðgjafa Glitnis á rekstri Íslandsbanka.

 Með þessu lýkur uppgjöri vegna þeirra eigna sem færðar voru frá Glitni til Íslandsbanka við fall bankanna í október á síðasta ári. Samkvæmt samningum skilanefndar Glitnis og íslenska ríkisins sem undirritaðir voru þann 13. september síðastliðinn mun ríkið jafnframt veita bankanum 25 milljarða króna víkjandi lán til að styrkja eiginfjár- og lausafjárstöðu bankans, að því er segir í fréttatilkynningu.

Þetta þýðir  að kostnaður ríkisins vegna fjármögnunar bankans verður tæpum 37 milljörðum króna minni en ella.

Ákvörðun skilanefndarinnar er tekin með fyrirvara um samþykki Fjármálaeftirlitsins og Samkeppniseftirlitsins. Skilanefnd Glitnis mun fara með eignarhald bankans fyrir hönd kröfuhafa í gegnum sérstakt eignarhaldsfélag. Glitnir mun skipa 4 stjórnarmenn af 5 í stjórn bankans en íslenska ríkið mun skipa einn stjórnarmann. 

Samkvæmt samningum skilanefndar Glitnis og stjórnvalda frá 13. september síðastliðnum gátu kröfuhafar í Glitni valið milli tveggja kosta. Annars vegar að eignast 95% hlut í Íslandsbanka og hins vegar að fá greiðslu í formi skuldabréfa útgefnum af Íslandsbanka og eignast kauprétt á allt að 90% af hlutafé bankans á næstu fimm árum.

Það er niðurstaða skilanefndar Glitnis eftir ítarlega skoðun að yfirtaka á 95% hlut í Íslandsbanka muni skila mestum verðmætum til kröfuhafa.  Þetta mat er meðal annars byggt á áliti þeirra ráðgjafa sem Glitnir hefur unnið með, en meðal þeirra má nefna sérfræðinga frá fjárfestingabankanum UBS og lögfræðifyrirtækinu Morrison & Foerster.

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segir í fréttatilkynningu: „Það er fagnaðarefni að Glitnir, í samráði við kröfuhafa, taki nú ákvörðun að eignast íslenskan banka. Þessi ákvörðun er skýrt merki um að erlendir fjárfestar sjá nú fyrir endann á þeirri alþjóðlegu fjármálakreppu sem við höfum glímt við undanfarið ár. Nú er verið að leggja lokahönd á endurreisn íslenska bankakerfins sem er að verða fullbúið til að þjónusta heimilin og styðja við uppbyggingu atvinnulífsins.

Mikilvægt er að fjárútlát ríkissjóðs verða miklum mun minni en annars hefði verið, þó ég sé þeirrar skoðunar að eignarhald ríkisins á Íslandsbanka hefði verið ágætur kostur fyrir ríkissjóð og almenning. Ríkissjóður mun leggja bankanum til eigið fé og ennfremur lausafjárstuðning, ef á þarf að halda. Bankinn stendur því uppi með afar trausta fjárhagsstöðu og á að geta þjónað viðskiptavinum sínum, almenningi jafnt sem fyrirtækjum, af kostgæfni.“

Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, segir í tilkynningu: „Við fögnum þessari niðurstöðu. Ég lít á þetta sem traustsyfirlýsingu við Íslandsbanka enda hafa ráðgjafar kröfuhafa framkvæmt ítarlega áreiðanleikakönnun á rekstri bankans. Þetta mun hafa jákvæð áhrif á starfsemi okkar og er mikilvægur liður í að byggja upp nýjan banka.  Ég vil taka fram að þetta hefur  engin áhrif á almenna starfsemi Íslandsbanka. Við munum halda okkar striki í því að vera í forystu um að leita lausna fyrir okkar viðskiptavini. Fyrir Íslandsbanka og allt starfsfólkið okkar sem lagt hefur á sig þrotlausa vinnu er þetta merkisdagur.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti »

Verslun Moss Bros í Oxford Street.

29% hlutur í Moss Bros seldur

16:19 Tæplega þriðjugur hlutafjár í karlmannafataversluninni Moss Bros hefur skipt um hendur, en fyrirtækið var um tíma í eigu Baugs. Meira »

Býr sig undir hugsanlegt hrun evrunnar

15:50 Englandsbanki hefur hafið undirbúning fyrir það ef til þess kemur að evrusvæðið liðist í sundur að meira eða minna leyti. Meðal þeirra ráða sem bankinn hyggst grípa til ef á þarf að halda er að lækka vexti og frekari magnslökun. Meira »

Væntingar vaxa lítillega í maí

Væntingar aukast með hækkandi sól.
11:16 Væntingar íslenskra neytenda jukust lítillega í maímánuði, en væntingavísitala Gallup, sem Capacent Gallup birti í morgun, hækkaði um tvö stig frá fyrri mánuði og mælist nú 73,3 stig. Meira »

Lægri verðbólga vegna lægra orkuverðs

Olíuverð hefur stuðlað að lægri verðbólgu.
10:29 Lægra orkuverð hefur stuðlað að lækkun verðbólgu í löndum OECD. Verðbólga í 34 aðildarlöndum OECD mældist 2,7% í mars. Verðbólga minnkaði mest í Bandaríkjunum, Kína og Bretlandi. Meira »

Fjölmiðlavaktin undir eigin vörumerki

Fréttamiðlun og samfélagsumræða hefur í auknum mæli flust yfir á netið.
09:54 Fjölmiðlavaktin, sem stofnuð var árið 1980, hefur undanfarin ár verið rekin undir merkjum Creditinfo en starfar nú á ný undir eigin vörumerki. Engar breytingar hafa þó orðið á eignarhaldi. Meira »

Spænsk hlutabréf ekki lægri í níu ár

Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, hefur í dag reynt að róa fjárfesta.
í gær Hlutabréfavísitala á Spáni lækkaði um 2,17% í dag en hún hefur ekki verið lægri í níu ár. Ástæðan er ótti fjárfesta við afleiðingar hruns Bankia, fjórða stærsta banka Spánar. Meira »

58 skjölum um atvinnuhúsnæði þinglýst

10:53 Í apríl síðastliðnum var 58 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst og 48 utan þess. Heildarfasteignamat seldra eigna á höfuðborgarsvæðinu var 9.056 milljónir króna en 631 milljón króna utan þess. Af þessum samningum voru 16 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

9,8% samdráttur í vörusölu á Spáni

Fólk mótmælir niðurskurði á Spáni.
10:07 Vörusala á Spáni dróst saman um 9,8% í apríl, borið saman við sama mánuð í fyrra. Samdrátturinn er mun meiri en reiknað hafði verið með. Þetta er 22. mánuðurinn í röð þar sem vörusala dregst saman á Spáni. Meira »

Innsýn í reksturinn

Hækkun á mörkuðum í Asíu

Hækkun varð í kauphöllinni í Tókýó í Japan dag.
08:28 Hækkun varð á mörkuðum í Asíu annan daginn í röð. Er hækkunin m.a. rakin til aukinnar bjartsýni um að Grikklandi haldi áfram evrusamstarfinu. Meira »

Grikkir uppiskroppa með fé í júní

Lucas Papademos, fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands.
27.5. Fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands, Lucas Papademos, varar við því að ef Grikkir fái ekki frekari fjárhagsaðstoð frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum verði þeir orðnir uppiskroppa með fjármuni í lok júní. Meira »

Tap af rekstri OR nam 4 milljörðum

25.5. Rekstrarhagnaður (EBIT) Orkuveitu Reykjavíkur varð 4,9 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi 2012. Það er afkomubati fyrir fjármagnsliði og skatta um liðlega 42% frá sama tímabili 2011. Ytri þættir – þróun álverðs og gengi krónunnar – voru heildarafkomunni áfram óhagstæðir. Tap af rekstri OR á tímabilinu nam 3.998 milljónum kr. Meira »

Yfirtekur rekstur sjóða rekstrarfélags Byrs

í gær Íslandssjóðir hf., dótturfyrirtæki Íslandsbanka, hefur yfirtekið rekstur verðbréfa- og fjárfestingarsjóða rekstrarfélags Byrs í framhaldi af sameiningu Íslandsbanka og Byrs. Meira »

Raunhæft að ríkið greiði sér brátt arð úr bönkunum

26.5. Þrátt fyrir að það megi teljast raunhæft að ríkið geti bráðlega greitt sér út arð úr bönkunum er hins vegar mikilvægt að þeir fjármunir verði nýttir annaðhvort til að greiða niður skuldir ríkisins eða til fjárfestinga í verkefnum með sambærilega arðsemiskröfu og Bankasýsla ríkisins gerir til þeirra banka sem ríkið á eignarhlut í. Meira »

Ferrari innkallar 56 bíla

Bifreið af gerðinni Ferrari 458 Italia.
25.5. Orðspor ítalska lúxbílaframleiðandans Ferrari hefur beðið hnekki í Kína eftir að opinberstofnun þar í landi sem fer með gæðaeftirlit lýsti því yfir í dag að bílaframleiðandinn þyrfti að innkalla 56 bifreiðar sem fluttar höfðu verið inn í landið vegna galla. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
  ISK   USD
  EUR   GBP
  CAD   DKK
  NOK   SEK
  CHF   JPY
Gengi gjaldmiðla

Sigurður Már Jónsson

mynd Ferðamennska til fjár
Fyrstu fjóra mánuði ársins fjölgaði erlendum ferðamönnum sem hingað koma um 20% sé miðað við síðasta ár. Það er staðfesting á þeim gríðarlega vexti Meira

Frosti Sigurjónsson

mynd Afnám hafta: Umræður á Alþingi
Afnám gjaldeyrishafta er afar mikilvægt úrlausnarefni stjórnvalda sem hefur verið furðu lítið rætt í Alþingi. Svo bar þó við að málið komst á dagskrá Meira

Már Wolfgang Mixa

mynd Vísitala fjármálalæsis á Íslandi fellur
Stofnun um fjármálalæsi og sálfræðisvið viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík birtir fimmtudaginn 3. maí rannsókn þar sem þekking, viðhorf og hegðun Meira

Bjarni Gylfason

mynd Iðjusemi jafngildir ekki aukinni framleiðni
Þrátt fyrir djúpa kreppu síðustu ár verður ekki litið framhjá þeirri mikilvægu staðreynd að hagþróun hér á landi undanfarna áratugi hefur að jafnaði Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir