Viðskipti
| mbl
| 19.10.2009
| 12:29
Skuldatryggingaálagið lækkar lítillega
Engar breytingar hafa orðið á gengi evru gagnvart krónu
það sem af er degi, enda engin viðskipti verið á millibankamarkaði með
gjaldeyri. Enn eru heldur engar breytingar merkjanlegar á
aflandsmarkaði með krónur. Skuldatryggingarálag til 5 ára á ríkissjóð
hefur lækkað lítillega í dag og er nú 392,5 punktar. Þetta kemur fram í Morgunkorni Greiningar Íslandsbanka.
Álagið er þó enn
nokkru hærra en það hefur farið lægst á þessu ári. Í lok september stóð
það í 356 punktum en hækkaði nokkuð viku seinna í takt við
almenna þróun á evrópskum mörkuðum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin




















