Hagnaður hjá Morgan Stanley á ný
Hagnaður bandaríska fjárfestingabankans Morgan Stanley nam 498 milljónum dala, 61,2 milljörðum króna, á þriðja ársfjórðungi. Þetta svarar til þess að hagnaðurinn hafi numið 38 sentum á hlut sem er mun betri afkoma heldur en sérfræðingar spáðu en að meðaltali hljóðaði spá þeirra upp á 27 sent á hlut í hagnað.
Næstu þrjá ársfjórðunga á undan var bankinn rekinn með tapi.
Morgan Stanley og Goldman Sachs eru einu stóru fjárfestingabankarnir á Wall Street sem lifðu af efnahagskreppuna á síðasta ári en báðir bankarnir fengu heimild til viðskiptabankaþjónustu svo þeir ættu auðveldari aðgang að lánalínum Seðlabanka Bandaríkjanna.
Í júní endurgreiddi Morgan Stanley þá tíu milljarða dala sem bankinn fékk lánaða hjá bandarískum stjórnvöldum.
Hagnaður Morgan Stanley nam 7,7 milljörðum dala eða 7,38 dölum á hlut á þriðja ársfjórðungi í fyrra.
Heildartekjur bankans námu 8,7 milljörðum dala samanborið við 18 milljarða dala á þriðja ársfjórðungi í fyrra.



















