Viðskipti
| mbl
| 21.10.2009
| 16:09
Jenið lækkar gagnvart krónu
Gengi krónunnar styrktist um 0,5% í dag og er gengisvísitalan 233,77 stig. Bandaríkjadalur er 121,85 krónur en hann hefur lækkað gagnvart krónunni líkt og jenið í dag. Jenið er nú skráð á 1,3380 krónur, evran er 182,90 krónur, danska krónan er 24,57 krónur og pundið 202,30 krónur, samkvæmt upplýsingum frá gjaldeyrisborði Íslandsbanka.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















