Viðskipti
| mbl
| 22.10.2009
| 9:00
| Uppfært
15.12.2009
14:48
Kaupmáttur lækkar enn
mbl.is
Launavísitala í september hækkaði um 0,3% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 1,9% en á sama tíma hefur vísitala neysluverðs hækkað um 10,8% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 15,7%.
Vísitala kaupmáttar launa í september 2009 lækkaði um 0,5% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa lækkað um 8%, samkvæmt útreikningum Hagstofunnar.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















