Viðskipti
| mbl
| 23.10.2009
| 8:04
| Uppfært
8:36
Áfram tap hjá Volvo
Tap á rekstri sænska vörubílaframleiðandans Volvo nam tæpum 4,2 milljörðum sænskra króna, jafnvirði 74,5 milljarða íslenskra króna, á síðasta ársfjórðungi. Tapið var samt minna en sérfræðingar höfðu spáð og fyrirtækið segir, að heldur sé farið að birta yfir mörkuðum, einum í Asíu, eftir erfiða mánuði.
Á öðrum ársfjórðungi var tap á rekstri Volvo Group 5,57 milljarðar sænskra króna eftir skatta.
Sölutekjur Volvo Group námu 48,5 milljörðum sænskra króna sem er heldur meira en sérfræðingar spáðu.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















