Viðskipti
| mbl
| 27.10.2009
| 20:51
Hagnaður hjá Century
Hagnaður bandaríska álfélagsins Century Aluminium, móðurfélags Norðuráls, nam 40,1 milljón dala, jafnvirði nærri 5 milljarða króna, á þriðja ársfjórðungi samanborið við 35,8 milljóna dala hagnað á sama tímabili í fyrra.
Það sem af er árinu er hins vegar 181,6 milljóna dala tap á rekstrinum, jafnvirði 22,5 milljarða króna, samanborið við 201 milljónar dala tap í fyrra.
Sölutekjur á þriðja ársfjórðungi námu 228,7 milljónum dala samanborið við 552,2 milljónir dala á sama tímabili í fyrra.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















