Viðskipti
| mbl
| 27.10.2009
| 10:55
Kaupþing fær hlut í JD Sports
Breskir fjölmiðlar segja, að fyrirtækið Sports Direct, sem er í eigu kaupsýslumannsins Mike Ashley, hafi misst 11% hlut í fyrirtækinu JD Sports Fashion til bankans Kaupthing Singer & Friedlander, sem er í slitameðferð.
Vísað er til tilkynningar, sem send var á hlutabréfamarkaði í Bretlandi í gærkvöldi. Þar kemur fram að 11,87% hlutur, sem metinn er á 29 milljónir punda, 5,8 milljarða króna, sé nú í eigu Kaupthing Singer & Friedlander.
Fram kemur að bankinn tók á sínum tíma þátt í að fjármagna kaup Ashleys á hlutnum. Eftir að bankinn féll hafi komið upp deilur um hver ætti í raun bréfin. Svo virðist, sem bankinn hafi unnið þá deilu.
Mike Ashley á meðal annars knattspyrnufélagið Newcastle.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















