Tólf mánaða verðbólga tæp 10%

Vísitala neysluverðs hefur hækkað um nærri 10% síðustu 12 mánuði.
Vísitala neysluverðs hefur hækkað um nærri 10% síðustu 12 mánuði. mbl.is/Arnaldur

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í október hækkaði um 1,14% frá fyrra mánuði og vísitalan án húsnæðis hækkaði  um 1,09%. Er þetta meiri hækkun en hagdeildir bankanna spáðu. Vísitala neysluverðs hefur samkvæmt útreikningum Hagstofunnar hækkað um 9,7% síðustu 12 mánuði en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 13,5%.

Greining Íslandsbanka spáði því að vísitala neysluverðs myndi hækka um 0,5% og hagfræðideild Landsbankans spáði 0,4% hækkun. 

17,5% hækkun á flugfargjöldum

Hagstofan segir, að kostnaður vegna eigin húsnæðis hafi hækkað um 1,4% í október, (vísitöluáhrif 0,19%) og voru áhrif af hækkun markaðsverðs 0,23% en af lækkun raunvaxta -0,04%. Verð á dagvörum hækkaði um 1% (0,18%) og verð á fötum og skóm um 1,6% (0,10%). Þá hækkaði verð á flugfargjöldum til útlanda um 17,5% (0,14%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 9,7% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 13,5%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,5% sem jafngildir 10,2% verðbólgu á ári (11,1% fyrir vísitöluna án húsnæðis).

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK