Íslenska krónan verður stöðugt verðminni.
Reuters
Gengi krónunnar hefur lækkað í dag og hefur nú lækkað jafnt og þétt alla vikuna. Í dag hækkaði gengisvísitalan um 0,35% og er 236,16 stig. Gengi Bandaríkjadals er skráð 125,07 krónur, gengi pundsins 206,52 krónur og evrunnar 184,46 krónur.