Viðskipti
| mbl
| 30.10.2009
| 7:27
Mikið tap hjá Sony
Japanski raftækjaframleiðandinn Sony Corp. tapaði 26,3 milljörðum jena, jafnvirði rúmlega 36 milljarða króna, á þriðja ársfjórðungi. Á sama tímabili á síðasta ári var 20,8 milljarða jena hagnaður á rekstrinum.
Sony býst við að 95 milljarða jena tap verði á rekstrinum á rekstrarárinu, sem lýkur í mars á næsta ári. Fyrri spár gerðu hins vegar ráð fyrir 120 milljarða tapi. Þetta yrði þó í fyrsta skipti, sem fyrirtækið tapar á heilu ári frá því það var skráð á hlutabréfamarkað 1958.
Mjög hefur dregið úr eftirspurn eftir sjónvörpum, myndavélum, leikjatölvum og öðrum raftækjum í fjármálakreppunni en útlitið er þó heldur að skána að sögn Sony.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















