Viðskipti
| mbl
| 30.10.2009
| 12:04
Tap á rekstri Eikar banka
Tap á rekstri færeyska bankanum Eik nam 100 milljónum danskra króna fyrstu níu mánuði ársins, jafnvirði 2,4 milljarða íslenskra króna. Á þriðja ársfjórðungi nam tap bankans 31 milljón danskra króna.
Fyrstu níu mánuði síðasta árs var tap bankans 33 milljónir danskra króna, þar af 23 milljónir á þriðja ársfjórðungi.
Fram kemur, að Eik hefur fengið framlag úr sjóði sem dönsk stjórnvöld settu á stofn vegna fjármálakreppunnar.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















