MP skoðar málefni Røsjøs

Margeir Pétursson, stofnandi og stjórnarformaður MP Banka. stækka

Margeir Pétursson, stofnandi og stjórnarformaður MP Banka.

MP banki skoðar nú hvort eitthvað sé á bak við fréttir norsks dagblaðs af athafnamanninum Endre Røsjø, að sögn Margeirs Péturssonar, stjórnarformanns bankans. Til stendur að Røsjø leggi MP banka til nýtt hlutafé og greiði fyrir það 1.400 milljónir króna. Eftir það verði hann næststærsti hluthafi bankans á eftir Margeiri.

Røsjø hefur kært dagblaðið Dagens Næringsliv (DN) til lögreglu fyrir umfjöllun þess um viðskipti hans og norska olíufyrirtækisins DNO. Fullyrðir blaðið jafnframt að Røsjø hafi bæði hótað blaðamanni sem og boðið honum háar fjárhæðir fyrir upplýsingar um heimildarmenn.

Fullyrðir norska blaðið að félag í eigu Røsjøs, Pinemont Securities, hafi haft milligöngu um greiðslur frá DNO til bandaríska erindrekans Peters Galbraiths. Segir jafnframt að DNO hafi greitt Galbraith fyrir að hafa auðveldað fyrirtækinu að fá olíusamninga við stjórnvöld í Kúrdahéruðum Íraks árið 2004.

Tengsl Røsjøs við norska olíufyrirtækið og forstjóra þess, Helga Eide, eru enn nánari samkvæmt frétt DN. Árið 2004 ákvað Eide að ráða Røsjø sem ráðgjafa. Skömmu síðar lánaði félag í eigu Røsjøs, Centennial AS, Eide fimm milljónir norskra króna, andvirði um 110 milljóna íslenskra króna á núvirði.

Lánsféð notaði Eide til að kaupa hlutabréf í DNO, sem ári seinna höfðu nær fjórfaldast í verði. Mun Røsjø hafa boðið blaðamanni DN um 10 milljónir íslenskra króna fyrir upplýsingar um heimildir fréttarinnar, sem hann telur byggða á stolnum gögnum.

Nánar er fjallað  um þetta mál í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti »

Arion banki.

Ekki stefnan að hagnast á verðbólgu

14:39 Arion banki hefur á undanförnum árum unnið markvisst að því að draga úr jákvæðum verðtryggingarjöfnuði, og það er eki stefna hans að hagnast á verðbólgu heldur viðhalda eðlilegum jönfuði á milli verðtryggðra skuldbindinga og eigna bankans. Þetta kemur fram í athugasemd frá bankans vegna umfjöllunar Morgunblaðsins. Meira »

Verðbólgan er innbyggð í kerfið

05:30 Verðstöðugleiki er ekki fyrir hendi í íslenska hagkerfinu sökum þess að verðbólgan er innbyggð í kerfið. Fyrir þessu eru færð rök í fréttabréfi verðbréfafyrirtækisins Júpiter. Meira »

Söluferli Iceland Foods framlengt

Iceland Foods.
Í gær, 21:05 Ákveðið hefur verið að framlengja söluferli verslunarkeðjunnar Iceland Foods en tveir fjárfestingasjóðir hafa gert tilboð í hlutafé keðjunnar. Sjóðirnir eru sagðir hafa metið verðmæti keðjunnar í janúar á 1,4-1,5 milljarða punda eða á 271 milljarð íslenskra króna. Meira »

Lækka lánshæfiseinkunn ítalskra banka

Í gær, 19:02 Matsfyrirtækið Standard & Poor's hefur lækkað lánshæfiseinkunn 34 ítalskra banka. Um miðjan janúar lækkaði fyrirtækið lánshæfiseinkunn ítalska ríkisins um tvo punkta. Meira »

Lækkun á Wall Street

Bandarískir hlutabréfamarkaðir hafa lækkað það sem af er degi
í gær Bandarískar hlutabréfavísitölur hafa lækkað það sem af er degi vegna Grikklands-vandans og minni þenslu í kínversku efnahagslífi. Meira »

Litlar breytingar á krónunni

í gær Eftir umtalsverða veikingu á gengi krónunnar í janúarmánuði hefur lítil breyting orðið þar á það sem af er febrúar.  Meira »

S&P: Egyptaland dýpra í ruslflokkinn

Óeirðir í Egyptalandi koma niður á efnahag landsins.
Í gær, 19:42 Egypska ríkið fékk skell í dag er matsfyrirtækið Standard & Poor's lækkaði lánshæfiseinkunn þess „dýpra niður í ruslflokk,“ líkt og það er orðað í frétt AP. Ótryggt stjórnmálaástand og stöðug átök í landinu eru sögð skýringin. Meira »

Verne Global í samstarf við Opin kerfi

Fyrirtækið Opin kerfi er með höfuðstöðvar við Höfðabakka í Reykjavík.
Í gær, 16:05 Verne Global tilkynnti í gær að það hafi valið Opin kerfi sem samstarfs- og þjónustuaðila til stuðnings við starfsemi sína hér á landi. Verne Global opnaði í vikunni eitt fullkomnasta gagnaver heims að Ásbrú í Reykjanesbæ. Meira »

Lítill áhugi hjá útlendingum

í gær Svo virðist sem erlendir aðilar hafi verið afar áhugalitlir um þau tvö ríkisbréfaútboð Lánamála sem fóru fram í janúarmánuði. Meira »

Verðbólgan 2,1% í Þýskalandi

Verðbólgan mælist 2,1% í Þýskalandi
í gær Verðbólgan mæld á tólf mánaða tímabili var 2,1% í Þýskalandi í síðasta mánuði. Er þetta sama verðbólga og mældist í Þýskalandi, stærsta hagkerfi innan evrusvæðisins, í desember. Meira »

Minni hagnaður hjá Barclays

Barclays bankinn
í gær Hagnaður breska bankans Barclays dróst saman um 16% á síðasta ári og nam 3 milljörðum punda, 581 milljarði króna.  Meira »

Samdrátturinn 17,7%

Gríðarlegt atvinnuleysi er á Spáni og fasteignasala dræm
í gær Fasteignasala dróst saman um 17,7% á Spáni á síðasta ári og virðist því bati á fasteignamarkaði sem sjáanlegur var árið 2010 á Spáni vera horfinn. Meira »

Vafasöm ákvörðun í upphafi að nota Gillz myndskeið

Alkemistinn mbl 43 Gillz22
í gær Mikil umræða hefur átt sér stað síðustu vikur um stóra límmiðamálið svokallaða. Stjórnendur Já.is ákváðu þá að framleiða og dreifa límmiðum sem viðskiptamenn þeirra gætu notað til þess að líma yfir mynd á forsíðu símaskráarinnar. Meira »

Lækkun á mörkuðum

í gær Allir helstu hlutabréfamarkaðir hafa lækkað í dag vegna stöðu mála í Grikklandi þar sem fjármálaráðherrar ríkja á evrusvæðinu gera auknar kröfur um niðurskurð í Grikklandi. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
ISK -   ISK USD - Bandaríkjadalur  USD
EUR - Evra  EUR GBP - Sterlingspund  GBP
CAD - Kanadadalur  CAD DKK - Dönsk króna  DKK
NOK - Norsk króna  NOK SEK - Sænsk króna  SEK
CHF - Svissneskur franki  CHF JPY - Japanskt jen  JPY
Gengi gjaldmiðla

Guðmundur um markaðsmál

mynd Ogilvy um prentauglýsingar.
David Ogilvy er oft kallaður faðir nútíma auglýsingamennsku. Hér verða skoðanir hans á því hvernig hægt er að ná hámarks árangri með prentauglýsingum Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir