Setja 40 milljarða punda í bankana
Samkvæmt frétt Daily Telegraph er ætlunin að styrkja bankana með innspýtingu nú en síðar í vikunni verði greint frá áætlunum stjórnvalda um að skipta bönkunum þremur upp og selja hluta þeirra.
Með þessu vonast stjórnvöld til þess að endurheimta eitthvað af því fé skattborgaranna sem hefur farið í að bjarga bönkunum.
Breska ríkið á 43% hlut í Lloyds Banking Group, 70% í Royal Bank of Scotland en Northern Rock er að fullu í eigu ríkisins.
Á breski fjármálaráðherrann, Alistair Darling, að hafa samþykkt að setja 26 milljarða punda í RBS í formi nýs hlutafjár. Það þýðir að hlutur ríkisins í bankanum fer úr 70% í 84%, samkvæmt frétt í Guardian í dag.
Darling hefur jafnframt samþykkt að setja 5,5 milljarða punda í LBG en bankasamsteypan ætlar að fara í hlutafjárútboð til þess að komast hjá frekari aðstoð frá ríkinu.
Northern Rock fær 8 milljarða punda að láni frá ríkinu svo hægt verði að skipta bankanum upp í tvo hluta og selja en salan var samþykkt af samkeppnisyfirvöldum Evrópusambandsins í síðustu viku.



















