15 stjórnendur Hróarskeldubanka kærðir
Danska fjármálaeftirlitið hefur kært 15 fyrrverandi stjórnendur Hróarskeldubanka til efnahagsbrotadeildar dönsku ríkislögreglunnar. Meðal þeirra er Niels Valentin, fyrrum forstjóri bankans, og tveir fyrrverandi stjórnarmenn, Arne Wilhelmsen og Allan H. Christensen.
Einnig hefur endurskoðunarfyrirtækið Ernst & Young verið kært til lögreglunnar.
Bankinn var tíundi stærsti banki Danmerkur en var tekinn yfir af danska seðlabankanum á síðasta ári í kjölfar lausafjárvandræða. Samkvæmt skýrslu sem gerð var um fall Hróarskeldubanka fyrr á þessu ári ber Hansen höfuðábyrgð á falli hans. Sjálfur hafnar Hansen, sem var bankastjóri frá 1978-2007 allri ábyrgð á vandræðum bankans. Í skýrslunni segir að hann hafi ekki „sinnt skyldum sínum sem forstjóri.“
Hansen hefur einnig verið ákærður fyrir þá ákvörðun sína að reyna að auka eigið fé Hróarskeldubanka með því að gefa út hlutabréf og kaupa síðan 22% af eigin hlutum. Er hámarksrefsing við slíku átján mánuðir.
Þá segir í skýrslunni, að stjórn bankans hafi brugðist eftirlitsskyldum sínum varðandi framkvæmdastjórnina og vanrækt að skoða möguleg áhrif af áhættusömustu útlánum bankans.
Í skýrslunni er Ernst & Young gagnrýnt fyrir að skrifa upp á ársskýrslur bankans en síðar hafi komið í ljós að ársskýrslurnar voru ófullnægjandi.
Fyrir fall Hróarskeldubanka í ágúst á síðasta ári hafði bankinn skilað af sér uppgjöri fyrir annan ársfjórðung með tapi upp á 5,1 milljarð danskra króna og útistandandi lán upp á 3,6 milljarða í vanskilum. Samkvæmt skýrslunni hefði stjórnin líklega ekki getað komið í veg fyrir fallið en væntanlega getað dregið úr tapi bankans.



















