Viðskipti
| AFP
| 4.11.2009
| 7:14
Hagnaður Adidas dregst saman um 30%
Herbert Hainer, forstjóri Adidas, stendur við merki fyrirtækisins í Herzogenaurach í suðurhluta Þýskalands AP
Hagnaður þýska íþróttavöruframleiðandans Adidas dróst saman um 30% á þriðja ársfjórðungi. Nam hagnaður félagsins 213 milljónum evra, 39 milljörðum króna. Er þetta í takt við væntingar og þann samdrátt sem er í smásölu. Er gert ráð fyrir að afkoma félagsins verði verri í ár en í fyrra.
Sala Adidas dróst saman um 6% á þriðja ársfjórðungi og nam 2,89 milljörðum evra. Ef leiðrétt er fyrir gengisáhrifum nemur söluaukningin 7%.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















