Røsjø kaupir ekki hlut í MP banka
Norski athafnamaðurinn Endre Røsjø mun ekki leggja 1400 milljónir króna í MP banka eins og til stóð. Margeir Pétursson, stjórnarformaður MP banka staðfestir þetta við Viðskiptablaðið, sem kemur út á morgun.
Fram kom á mbl.is í september að samkomulag hefði náðst við Røsjø um að hann leggði MP banka til nýtt hlutafé og yrði í kjölfarið næststærsti eigandi bankans. Var samþykkt á hluthafafundi bankans í október að gefa út nýtt hlutafé og hafði Røsjø skuldbundið sig til að kaupa hluta af nýja hlutafénu.
Viðskiptablaðið segir, að Røsjø hafi verið mjög áhugasamur um að kaupa stærri hlut í MP banka en honum stóð til boða. Aðrir hluthafar hafi hins vegar ekki verið sáttir við þá fyrirætlan enda markmiðið að stækka eigendahópinn og dreifa eignarhaldinu.
Þá hafi mál í Noregi, sem sagt var frá í Morgunblaðinu um síðustu helgi, ekki aukið traust eigenda MP banka á Røsjø.



















