Viðskipti
| Morgunblaðið
| 7.11.2009
| 5:30
| Uppfært
7:10
Uppfyllir skilyrði FME
MP banki þarf ekki lengur á undanþágu frá reglum Fjármálaeftirlitsins um að einstakar áhættuskuldbindingar megi ekki vera hærri en sem nemur 25% af eigin fé banka.
Samkvæmt upplýsingum frá bankanum eru einstakar áhættuskuldbindingar bankans undir mörkum og þarf hann því ekki á undanþágunni að halda.
Eins og sagt var frá í Morgunblaðinu í síðustu viku kom fram í skýrslu Seðlabankans um fjármálastöðugleika að allir viðskiptabankarnir á Íslandi, það er að segja Nýi Landsbankinn, Nýja Kaupþing, Íslandsbanki og MP banki, störfuðu á undanþágu frá þessum reglum og hefðu fengið ákveðin tímamörk til þess að ráða bót á þessum málum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















