Aukning hjá Icelandair Group
Icelandair Group flutti 9% fleiri farþega í október síðastliðnum en í október 2008. Innan Icelandair Group er Icelandair stærst svo koma Flugfélag Íslands og Smart Wings í Tékklandi. Tekjur Icelandair Group á hvern sætiskílómetra urðu einnig 9% meiri nú en í október í fyrra.
Icelandair Group flutti 171 þúsund farþega í október síðastliðnum en 157 þúsund farþega í október í fyrra. Sætanýting hjá félaginu nú var 74,2% nú en var 72,5% í október í fyrra.
Talsverður samdráttur varð í vöruflutningum Icelandair Group. Þannig voru flutt 15.094 tonn af vörum í október síðastliðnum en 19.257 tonn í október í fyrra.
Hvað varðar Icelandair eitt og sér hafa flutningar frá Íslandi minnkað miðað við síðasta ár, en svipað og búist var við. Í október síðastliðnum voru fluttir álíka margir farþegar til Íslands og í október í fyrra. Aukning varð í flutningi farþega yfir Atlantshafið, einkum milli Bretlands og Bandaríkjanna.



















