Viðskipti
| mbl
| 11.11.2009
| 15:23
Enn eykst atvinnuleysi í Bretlandi
Alls voru 2,46 milljónir Breta á atvinnuleysisskrá á þriðja ársfjórðungi eða 7,8%, samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Bretlands. Fjölgaði atvinnulausum um 30 þúsund í fjórðungnum og er það minnsta ársfjórðungsaukningin síðan í maí 2008.
Atvinnuleysi er gríðarlega mikið meðal ungs fólks eða 19,8%. Alls eru 943 þúsund ungmenni á aldrinum 16-24 ára án atvinnu í Bretlandi.
Samkvæmt frétt á vef BBC hafa 618 þúsund Bretar verið án atvinnu í meira en ár og hafa ekki verið jafn margir í tólf ár.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















