Eignir lífeyrissjóðanna aukast
Hrein eign lífeyrissjóðanna var 1.734 milljarðar króna í lok september sl. og hækkaði um 26,1 milljarð í mánuðinum, samkvæmt upplýsingum frá Seðlabankanum.
Sé miðað við september 2008 hefur hrein eign hins vegar lækkað um 49,2 ma.kr. eða 2,8 prósent. Sú breyting hefur orðið að afleiðusamningar, sem áður hafa verið undir liðnum aðrar eignir, eru nú sýndir í liðnum afleiðusamningar. Sýna þær tölur að lífeyrissjóðirnir skulda samtals tæpa 66 milljarða króna vegna afleiðusamninga.
Milli mánaðanna ágúst og september jukust sjóðir og bankainnstæður lífeyrissjóðanna um 6,35 prósent og eignir í erlendum verðbréfasjóðum um 0,43 prósent. Hins vegar lækkaði eign þeirra í erlendum skuldabréfum um 3,16 prósent og í innlendum verðbréfasjóðum um 2,81 prósent.



















