Myndlistamarkaðurinn að lifna við
Alls seldist samtímalist fyrir 134,4 milljónir dala, 24,5 milljarða króna, á uppboði hjá Sotheby's í New York í gærkvöldi en 96% þeirra verka sem voru til sölu seldust, það er 52 af þeim 54 verkum sem í boði voru. Fyrirfram var talið að verkin myndu fara á 97,7 milljónir dala.
Til að mynda seldist verk Andy Warhol „200 One Dollar Bills," á 43,8 milljónir dala, 5,5 milljarða króna, en fyrirfram var verkið metið á 12 milljónir dala. Sjálfsmynd af Warhol, sem var metin á 1,5 milljón dala seldist á 6,1 milljón dala. Það skemmtilega við það verk er að var geymt ofan í kommóðuskúffu eigandans í 42 ár, Cathy Naso, sem var eitt sinn ritari í Verksmiðju Warhols á sínum tíma.
Tobias Meyer, sem stýrir samtímalistadeild Sotheby's, segir að listamarkaðurinn sé að lifna við á ný. Það sjái hann á þeim boðum sem komu fram á uppboðinu og það sé ljóst að það er eftirspurn eftir góðri list. Neytendur hafi byrjað að taka við sér eftir maí í ár.
En þrátt fyrir að vel hafi gengið í gær þá er ekki það sama uppi hvað varðar sölu á uppboði hjá Christie's kvöldið áður. Þá var það verk eftir Peter Doig sem sló í gegn en myndin Reflection frá árinu 1996 var seld á 10,2 milljónir dala, 1,3 milljarða króna, sem er tvöfalt það sem hún var metin á fyrir uppboðið. Alls seldust 85% þeirra verka sem boðin voru upp á 74,1 milljón dala. Er það í takt við væntingar fyrir fram.
En ekki gekk jafn vel að selja allt sem selja átti. Til að mynda verk eftir Andy Warhol sem enginn sýndi áhuga og verk Jean-Michel Basquiat, „Brother Sausage," sem metið var á 9-12 milljón dala.



















