Viðskipti
| mbl
| 13.11.2009
| 10:02
Hagnaður hjá Atlantic Airways
Atlantic Airways
Hagnaður færeyska flugfélagsins Atlantic Airways nam 6,4 milljónum danskra króna, 161 milljón íslenskra króna á fyrstu níu mánuðum ársins. Á þriðja ársfjórðungi nam tap félagsins 3,6 milljónum danskra króna, 90 milljónum króna.
Samdráttur í efnahagslífinu hefur haft áhrif á starfsemi félagsins, að því er segir í tilkynningu til Kauphallarinnar. Nemur samdrátturinn 34% á fyrstu níu mánuðum ársins en 53% á þriðja ársfjórðungi.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















