Hrein eign lífeyrissjóðanna nálgast eignir fyrir hrun
Hrein eign lífeyrissjóðanna í krónum talið er nú hægt og bítandi að nálgast það sem hún var fyrir hrun bankanna í fyrra, að því er segir í Morgunkorni Íslandsbanka.
„Þannig var hrein eign í lok september 36,4 ma.kr. minni en hún var á sama tíma fyrir ári sem jafngildir um 2,1% lækkun að nafnvirði Sé hins vegar tekið tillit til verðbólgu minnkaði hrein eign um 12% að raunvirði á tímabilinu.
Þó ber að hafa í huga að enn eru ekki öll kurl komin til grafar varðandi endanlegt tap sjóðanna af fyrirtækjaskuldabréfum og fleiri eignum í kjölfar bankahrunsins.
Liggur því nokkur óvissa um endanlegt mat á eignum lífeyrissjóðanna og ber þess vegna að taka mati á hreinni eign sjóðanna með fyrirvara," að því er segir í Morgunkorni Greiningar Íslandsbanka.
Stærsta áfallið fyrir sjóðina síðastliðið haust var af innlendri hlutabréfaeign. Í lok september í fyrra áttu lífeyrissjóðirnir um 150,7 ma.kr. í innlendum hlutabréfum og hlutabréfasjóðum en mánuði síðar var sú eign komin niður í 41,6 ma.kr.
„Staða þeirra á innlendum hlutabréfamörkuðum er enn sáralítil og nú í lok september var eign sjóðanna í innlendum hlutabréfum og hlutabréfasjóðum 35,4 ma.kr. sem svarar til 2% af hreinni eign þeirra.
Á hinn bóginn var vægi erlendra hlutabréfa og hlutabréfasjóða af hreinni eign í lok september hærra en það hefur verið að jafnaði, eða um 22,4%, sem nýtist þeim vel nú þegar vel árar á erlendum mörkuðum. Í september hækkaði S&P 500 hlutabréfavísitalan um 3,6% og Nasdaq um 5,6%."
Þróun íslensku sjóðanna er þó ekkert einsdæmi, að því er segir í Morgunkorni. Í lok síðasta árs gaf OECD út skýrslu um áhrif fjármálakreppunnar á lífeyrissjóði í aðildarlöndunum. Var það mat stofnunarinnar að hrein eign sjóðanna í heild hefði rýrnað um tæp 20% frá upphafi ársins 2008 til októberloka það ár. „Í því ljósi má segja að staða íslensku sjóðanna sé viðunandi, enda hafa lífeyrissjóðakerfi annarra landa ekki þurft að glíma við að meirihluti innlendrar hlutabréfaeignar þurrkaðist út."



















