Viðskipti
| mbl
| 13.11.2009
| 16:04
Krónan styrktist verulega
Gengi krónunnar styrktist um 1,35% í dag og er gengisvísitalan 236,15 stig. Eru talsverð viðskipti á millibankamarkaði á bak við styrkinguna en ekki er um inngrip að ræða af hálfu Seðlabankans. Gengi Bandaríkjadals er 123,55 krónur, evran er 184 krónur, pundið 206,10 krónur og danska krónan er 24,73 krónur, samkvæmt upplýsingum frá gjaldeyrisborði Íslandsbanka.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















