Cimber Sterling í erfiðleikum
Danska flugfélagið Cimber Sterling, sem m.a. keypti flugvélar af þrotabúi flugfélagsins Sterling á síðasta ári, á í miklum rekstarerfiðleikum. Að sögn danskra fjölmiðla skuldar félagið birgjum um 100 milljónir danskra króna, jafnvirði um 2,5 milljarða íslenskra króna.
Cimber Sterling er að undirbúa skráningu á hlutabréfamarkað og vonast til að afla nýs hlutafjár með því móti. Jótlandspósturinn segir, að í upplýsingum, sem birtar hafa verið í tengslum við hlutafjárútboð, komi fram að félagið sé að hluta til fjármagnað af birgjum upp að 100 milljónum króna. Um helmingur birgjanna vilji fá skuldina greidda strax en hinn helmingurinn hafi fallist á að fresta greiðslum þar til í desember.
Takist ekki að skrá félagið á markað muni félagið þurfa á fjármögnun að halda, sem nemi um það bil 75 milljónum króna til að geta haldið rekstrinum áfram.
Jótlandspósturinn hefur eftir sérfræðingum, að það væri mikil áhætta fólgin í að kaupa hlutabréf Cimber Sterling. Félagið geti tekið flugið en það geti líka brotlent.
Cimber Sterling, sem þá hét Cimber Air, keypti í desember í fyrra nafn, starfsleyfi og vefsvæði Sterling, sem varð gjaldþrota sl. haust. Einnig keypti félagið sex flugvélar Sterling. Nafni félagsins var síðan breytt í Cimber Sterling um mitt þetta ár. Höfuðstöðvar félagsins eru í Sønderborg syðst á Jótlandi.



















