Viðskipti
| mbl
| 17.11.2009
| 16:08
Árslækkun vísitölu íbúðaverðs 10%
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um 0,1% í október frá fyrra mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 0,6%, síðastliðna 6 mánuði hefur hún lækkað um 0,2% og lækkun síðastliðna 12 mánuði var 10%. Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs, að því er segir á vef Fasteignaskrár Ísland.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















