Viðskipti
| AFP
| 18.11.2009
| 12:04
Rose hættir sem forstjóri M&S
Stuart Rose, forstjóri og stjórnarformaður bresku verslunarkeðjunnar Marks & Spencer, mun láta af störfum forstjóra á næsta ár og Marc Bolland, núverandi framkvæmdastjóri smásölukeðjunnar Morrisons, verður forstjóri. Rose, sem áður stýrði Arcadia, verður áfram stjórnarformaður M&S.
Í tilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að Rose muni vera í hlutastarfi sem stjórnarformaður fram á mitt ár 2011 er hann lætur af störfum en talsvert er síðan Rose tilkynnti að hann myndi láta af störfum í júlí 2011. Síðar verður greint frá því hvaða dag Bolland hefur störf hjá M&S.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















